Fjólan og family

ævintýri fjölskyldunnar

29.08.2009 19:39:56 / fjolzen

seint skrifa sumir, en skrifa þó :)

Er alveg gjörsamlega ekki að nenna þessu bloggi eftir að facebook kom til sögunnar. Spurning hvort einhver kíki hérna inn meira.
En allavega þá er alveg hellingur búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Ég er búin með hjúkrunarnámið mitt... fékk 7 í bachelor og útskrifaðist 26. júní. Fór í 3. berlínarferðina mína 22. júní, í þetta skiptið með ástinni minni :)
Við fluttum 8. maí í örestaðinn og búum núna í huges íbúð með 26 fm svölum... allt annað líf.
Ég byrjaði að vinna 15. júlí, sem hjúkurnarfræðingur á deild MG á Amagerhospital. Mér líkar vel enn sem komið er og vona að mér eigi bara eftir að líka betur og betur eftir því sem á líður.
Strákarnir okkar luku svo vist sinni á Svanereden/Enveloppen 31. júlí. Svolítið skrítið að kveðja stofnuninna sem hefur passað uppá og aðstoðað okkur við að ala upp börnin okkar síðan í janúar 2005.
Þeir byrjuði svo nýtt líf í nýjum híbýlum 3. ágúst. Arnar Máni byrjaði á frítídsheimili á íslandsbryggju og Haukur byrjaði í leikskólanum Börnehuset Sundby Algård. Þeir eru báði ofsalega ánægðir og glaðir. Arnar Máni byrjaði svo í skólanum 17. ágúst og virðist líka það vel.

Þessir sætu strákar okkar vaxa og dafna ofsa vel. Arnar Máni verður 6 ára eftir 2 vikur og getur ekki beðið. Hann er alltaf jafn vinsæll hjá stelpnum og finnst það ekki leiðinlegt.

Haukur er bara dásamlegur. Talar eins og ég veit ekki hvað. Hætti með bleyju og snuddu löngu áður en ég var tilbúin til þess og er einfaldlega bara snillingur að foreldranna mati :) Reyndar hafa fóstrurnar á nýja leikskólanum líka talað um að þær hafi aldrei séð jafn ungann dreng eins duglegann að púsla eins og hann. Hann tekur svoleiðis öll púsl leikskólanns í nefið, púsl sem sumir 5 ára krakkar ráða engan veginn við. Þegar hann púslar þá slakar hann líka á og það er nú ekki oft sem þessi litli orkubolti slakar á.
Við eigum sem betur fer heima á jarðhæð því hann hoppar stanslaust og ég held að nágrannar okkar frá kollegiinu hafi ekki grátið þegar við fluttum.

Þetta er svona í stórum dráttum það sem er búið að gerast hjá okkur síðan í mars. Næst á dagskrá er svo að koma til íslands... það stórmerki gerist 9. október. Það er orðið ansi langt síðan við snertum íslenska jörð. Gummi kom síðast jólin 2007 og ég var síðast á íslandi með strákana í júlí 2008. Þannig að það verður yndislegt að koma heim og anda að sér fersku lofti, drekka ferskt vatn og knúsa ferskt fólk :)

Nú er ég búin að svala þessari bloggþörf sem ég fékk skyndilega. Ef það verða stór viðbrögð við þessu bloggi þá er aldrei að vita nema það verði stutt í næsta :)
pís át pípol



» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2009 16:04:25 / fjolzen

Berlín taka 2

Jæja þá er loksins komið að berlínarferð nr. 2. Er búin að bíða síðan í október eftir þessum degi. Við erum nú aðeins færri en í fyrra, eða einungis 4 í þetta skiptið (vorum 15 í fyrra). En það er ekki fjöldinn sem ákveður hversu gaman verður, það er fólkið sem maður er með.... og er ég að fara með eðalkonum, þeim: Elínu, Auði og Elísabetu. Það verður yndislegt að komast í alvöru húsmæðraorlof og fá að sofa alla nóttina.... eða djamma alla nóttina :)
Við ætlum að skella okkur aftur á blindraveitingastaðinn og fá okkur sushi og skoða miklu meira en við gerðum síðast. Kannski ég eyði líka örlítið meira en síðast, þar sem skattmann var svo góður við okkur þetta árið :)
Nú ætla ég að fara og elda síðustu kvöldmáltíðina þangað til á mánudaginn. Svo skelli ég mér beint útí pítseríu og skála í einn kaldann.
Eigið góða helgi.... það ætla ég svo sannarlega að eiga


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 07:20:14 / fjolzen

18. febrúar 2009.... 3 ár í þrítugt

Ég hef alltaf skrifað blogg á þessum degi og ætla ekkert að hætta því.
Er orðin einu árinu eldri og vitrari (tel ég mér trú um).
Vaknaði í morgun og fékk kossa frá þremur sætum strákum og rosa fína pakka. Fékk geggjaðan kjól og bol.... æðislegt.
Nú ætla ég að baka eina betty og fara svo í klippingu til Steinunnar minnar.
Svo verður partý og ball á föstudaginn, tilefni til að nota fína fína kjólinn minn :)
Vonandi á ég góðan dag í dag og þið öll líka.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 16:52:43 / fjolzen

Life

Allir orðnir hressir og kátir á þessum bæ.
Fórum í gær á Kings of Leon tónleika. Ofsa gaman, ég þekkti öll lögin og söng með hástöfum og hafði gaman af. Eina sem væri hægt að gagnrýna var að þeir virkuðu svolítið þreyttir og það skein pínu í gegn í fyrstu lögunum. Svo náðu þeir sér á strik og rokkuðu feitt hehe. En spiluðu samt ekki nema 16 lög og 3 í uppklapp. Það vantaði alveg Manhattan og 17. Annars voru öll hin lögin snilldin ein.
Nú styttist í afmæli heimilisfrúarinnar. Ætla bjóða til mín vel völdum kvenmönnum og ætlum við að borða saman góðan mat og drekka vín og bjór. Svo ætlum við að skella okkur í næstu götu á alvöru íslenskt sveitaball með hljómsveitinni "Á Móti Sól". Það verður án efa skemmtilegt eins og allt er þegar maður er með þessum hópi af kellum.
Svo tekur víst alvaran við og þann 2. mars byrja ég á bachelor ritgerðinni. Er búin að finna stelpu til að skrifa með og við erum búnar að ákveða efni. Ætlum að skrifa um foreldra með sérstakar þarfir, t.d. geðsjúkdóma eða misnotkun eða eitthvað í þá áttina, Hvernig þeim tekst að mynda samband við barnið sitt. Þetta verður eitthvað spennandi.... er bara fegin að vera byrjuð á einhverju, komin með hugmynd að einhverju.
Á svo að skila þann 3. júní... þannig að í 3 mánuði verð ég out of it.
Nei ætla svo sannarlega ekki að vera með þetta í huga 12.-15. mars þegar ég ætla vera out of it í Berlín!!!
Jæja ætla fara og athuga með hollustumatinn í ofninum, franskar og risaeðlukjúklingur (Gummi að vinna lengi og ég nenni ekki að elda)



» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 13:01:10 / fjolzen

Heilsubælið í gervahverfi

Það var ofsa gaman á afmælinu hans Gumma. Gott að komast út og borða góðan mat.
Svo er líka búið að vera ofsa erfitt að hætta að borða góðan mat og byrja að borða hollan mat aftur. Að ég tali ekki um að drulla sér í ræktina.
Drullaði mér loksins á fimmtudaginn og reyndi helling á mig.
Fór svo í thai bo á laugardaginn en var hálfslöpp fyrir tímann og stakk af í miðjum tíma með beinverki og hita. Haukur hafði verið veikur daginn áður og Arnar Máni var orðinn veikur.
Ég mátti samt ekkert vera að þessu þannig að ég dældi í mig verkjatöflum og fór að læra. Undirbjó hjúkrunarráðstefnuna sem var lokaprófið mitt fyrir þessa önn.
Aðfaranótt sunnudagsins lá ég í móki með bullandi hita, leið alveg hryllilega.
Arnar Máni var líka ofsa mikið veikur og kl hálf fimm ældi hann yfir allt baðherbergið. Ég lá svo allan sunnudaginn í móki.
Fór svo í prófið í gær, uppdópuð af verkjatöflum og náði.... en þarf að bæta mig heilan helling fyrir bachelor.... svona er nú bara það.
Nú eru strákarnir ennþá veikir. Haukur var með hita í gær og AM líka í morgun.
Ég er gjörsamlega að fara yfir um, langar svo út í sólina og fallega veðrið.
45 fermetra íbúðin er ekki að gera sig akkúrat núna.
Langar í heilsu og heilsu fyrir syni mína takk fyrir.



» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 13:46:42 / fjolzen

ofsa dugleg á nýju ári

Heilir 13 dagar búinir af þessu glænýja ári 2009. Ég er ekki búin að gera merkilega hluti. Var í praktíkinni í síðustu viku og er í þessari að skrifa lokaverkefnið í praktíkinni. Það svona gengur.... ætla mér að vera búin með það á föstudaginn þar sem þóra er að koma og Gummi á afmæli. Þannig að ég ætla spýta í lófana á morgun og ná að skrifa restina og svo fínpússa og gera litteraturlista á fimmtudaginn.... alltaf gott að hafa markmið.
Talandi um markmið, þá er ég byrjuð í smá átaki. Fannst ekki hægt að ganga um í náttbuxum og leggings til skiptis og geta engan veginn farið í gallabuxurnar. Ákvað að nú væri nóg komið og eitthvað skildi gert í málunum. Ég tók mataræðið í gegn hjá mér, reyni að borða ofsa mikið grænmeti og drekka mikið vatn. Ekkert kók eða sælgæti hefur verið keypt á þetta heimili síðan um áramótin. Ég keypti mér líka kort í ræktina. Sumir eru með rödd í hausnum á sér sem hvetur þá áfram í ræktinni.... mín rödd segir "æi greyið mitt, þér er svo illt í fótunum, taktu nú bara pásu". En þegar ég prófaði Thai-Bo á laugardaginn þá fann ég það sem mig vantar. Mig vantar öskrandi þjálfara sem segir áfram, þú getur þetta.
En það er skemmst frá því að segja að þetta átak virkar og virkar vel. Ég missti tæp 2 kíló á einni viku og fékk í staðinn fullt af harðsperrum, ofsa mikla orku og lífsgleði og gott skap.
Ætla halda áfram að vera dugleg, reyndar verður svindl á föstudaginn.... hvað gerir maður ekki fyrir kallinn sinn.



» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 16:28:05 / fjolzen

2008 í orðum

Janúar:
Alltaf þungur mánuður. Gummi á reyndar afmæli og við skelltum okkur út að borða. Ætlum nú að gera eitthvað skemmtilegra 16. janúar nk. (blikk blikk þóra)
Við kollegikellurnar skelltum okkur í sofiebadet til að lyfta okkur upp í skammdeginu og það var aldeilis upplyfting (prúmfenlúgten).
Ég kláraði praktíkina mína í heimahjúkrun.
Febrúar:
Besti mánuður ársins. Ég varð 26 ára, bakaði köku og fékk ljót föt í afmælisgjöf, en enga frá eiginmanni mínum.... og er ekki enn búin að fá.
Fórum á tvo tónleika, Queens of The Stone Age og Smashing Pumpkins. Þóra kom með á Smashing og það er sko alltaf lovely að fá Þóruna í heimsókn.
Við gerðumst alvöru íslendingar og keyptum okkur bíl.... sem við höfðum ekkert efni á og erum búin að finna fyrir því :(
Ég byrjaði í praktík í geðhjúkrun.
Mars:
Stelpuferð aldarinnar var farin til Berlínar. Vorum 15 saman og gistum hjá Rut. Skemmtum okkur konunglega og ætlum nokkar að endurtaka leikinn þann 12. mars nk.
Nýttum okkur bílinn okkar og fórum til Þýskalands rétt fyrir páska með strákana og gistum á hóteli í Rostock.
Apríl:
Ég fór í tímavél 10 ár aftur í tímann til að upplifa gamlann draum. Sá Backstreet boys live með Hafdísi og Steinunni.
Skelltum okkur í æðislega helgarferð til Halls og Steinunnar í Horsens. Alltaf lovely að heimsækja þessa yndislegu fjölskyldu.
Praktíkinni í geðhjúkruninni lauk.
Maí:
Sumarið kom ekstra snemma þetta árið og við skelltum okkur á ströndina í 25 stiga hita þann 10. maí. Grillað og leikið á legepladsen.
Ég byrjaði á viðbjóðs verkefni í skólanum sem tók 3 vikur.
Júní:
Verkefninu lauk og ég varð lasin. Var lasin í tæpan mánuð með blöðrur á eggjastokkum, sýkingar og hita. Rétt náði að útskrifast af spítalanum til að komast til íslands 1. júlí.
Systursonurinn Fannar Óli kom í heiminn þann 26. júní.
Júlí:
Byrjaði á íslandi. Fór alein með strákana mína og hélt mér góðri með verkjatöflum. Varð svo hress eftir viku og missti mig í mömmuhlutverkinu með Þórunni minni og Heklunni hennar.
Fór á reunion Setbergsskóla og það var alveg ótrúlega skemmtilegt.... svona það sem ég man, glösin voru svolítið stór.... hehehe
Olla og fjölskylda komu í heimsókn og við fórum öll í sumarbústað. Æðisleg vika með ansi mörgum geitungum en virkilega góðu og skemmtilegu fólki :)
Ágúst:
Verslunarmannahelgin var haldin hátíðleg úti í garði, börnin svæfð í vögnum og fullorðnar fólkið drakk og söng fram á nótt.
Ég byrjaði að vinna vikarvinnu og tók nokkar vaktir. Fjölskyldan fylgdist spennt með úrslitum í handboltanum á ÓL.
Koja var byggð í herbergi strákanna. Ég reyndi án árangurs að smita strákana af hlaupabólu.
September:
Frumburðurinn átti langþráðan afmælisdag, sem mér tókst að gera eftirminnilegan. Ég byrjaði í skólanum í áfanga sem heitir sexologi. Er ofsa fróð um kynlíf eftir þennan áfanga :)
Við smökkuðum sushi í fyrsta sinn, fórum með matarklúbbnum út að borða.
Svo skelltum við kellingarnar okkur aftur í sófiebaðið og nutum vel.
Byrjaði í praktík í lok mánaðarins á gjörgæslu... er þar enn.
Október:
Byrjaði á því að Gummi missti vinnuna sína. Fékk sem betur fer nýja vinnu 3 tímum seinna. ég drukknaði í praktíkinni minni og strákarnir voru sirka 9 tíma á dag í leikskóla.
Skellti mér til Svíðþjóðar með velvöldum konum og verslaði af mér rassgatið
Nóvember:
Litla dýrið átti 2ja ára afmæli. Haldið var uppá það með pompi og prakt. Sama dag seldum við bílinn okkar og losnuðum þarmeð burt frá þeim útgjöldum.
Svo var bara haldið áfram í vinnu og leikskóla og praktík.
Desember:
Jólaundirbúiningur, jólaskemmtanir, strákarnir mínir að meika það í söng og performance. Mamma og pabbi eyddu jólunum með okkur og þau voru yndisleg. Bólan hljóp loksins í Haukinn og nú bíðum við eftir að hún hlaupi í Arnar Mána

Nú er þetta ár búið. Næsta ár verður langt frá því minna spennandi.
Ég ætla til berlínar aftur. Ég byrja á bachelor ritgerð 1. mars og lýk henni vonandi í byrjun júní. Ég ver hana svo í lok júní og útskrifast vonandi sem hjúkrunarfræðingur í kjölfarið. Stóri strákurinn minn lýkur leikskólavist sinni og byrjar í skóla. Litli strákurinn verður stærri og hættir í vöggustofu og byrjar í leikskóla. Öll verðum við árinu eldri og vitrari.
Allar líkur eru á að vist okkar á kolleginu ljúki og við komumst í heim hinna eðlilegu í alvöru íbúð.... oh það verður næs.
Takk allir fyrir gott ár og hlakka til að eiga annað gott ár með ykkur.




» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 08:22:04 / fjolzen

Gleðileg jól

Aðfangadagur jóla runninn upp. Jólatréð stendur tilbúið í stofunni (búið að standa tilbúið í rúma viku). Hamborgarhryggurinn liggur í ískápnum og bíður eftir að vera tekinn út og skellt í pott. Allir pakkar innpakkaðir. Ísinn frystist í frystinum.... reyndar er einn grænn sökum þess að ég ætlaði að henda vanilludropum útí og skellti slurk en þá var það blár matarlitur :) hahaha það var mikið hlegið.
Strákarnir sitja spenntir og glápa á sjónvarpið og reyna að fá tímann til að líða, held að maður þurfi að hjálpa þeim með það.
Mamma og pabbi eru í blokkinni og ætla vera með okkur í kvöld sem mun pottþétt fullkomna þessi jól :)

Gleðileg jól allir saman. Vona að þið hafið það súpergott í kvöld og á morgun og hinn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 20:34:30 / fjolzen

Jólin nálgast.... óðfluga

Julefrokostinn var bara rosa fínn. Fólkið var alveg frábært og við skemmtum okkur mjög vel.... kannski of vel, þar sem ég sat með hausinn ofan í poka alla leiðina heim. Mæli ekki með því að keyra í tveggja hæða rútu í 8 tíma, daginn eftir að maður hefur drukkið frá sér allt vit. Sem betur fer var yndislegt fólk sem sá um strákana okkar og þökkum við þeim margfalt fyrir.

En allt er búið að vera á 3000 hérna heima síðan. Við vinnum á fullu, Gummi kom heim kl 21 á mánudagskvöldið og sjö í gær.
Í gær var svo sirkussýning í leikskólanum og Arnar Máni sýndi listir sínar. Svo í dag var luciadagur, það er jólaskemmtun í leikskólanum þar sem eru hitaðar eplaskífur og juleglögg og svo eru elstu börnin klædd upp í hvíta kjóla með kerti í hönd og syngja fallegt lag á meðan þau ganga um í halarófu.
Stolti bráðum skólastrákurinn minn stóð sig með prýði og var ofsa duglegur og flottur.
Á morgun fær svo litla dýrið að sýna hvort hann geti staðið sig eins vel :) Reyndar ekki alveg hægt að ætlast til þess, en það verður gaman að sjá það. Ég set svo inn myndir af þessu öllu saman við tækifæri.

Á laugardaginn er svo jólaball kollegiisins og ætlum við ekki að láta okkur vanta á það, held að þetta sé í fyrsta skiptið sem ég er gestur og ekki skipuleggjandi og ég ætla sko svo sannarlega að njóta þess :)


Á Sunnudaginn er svo jólaball á Norðurbryggju og ætlum við fjölskyldan líka að heiðra alla með komu okkar þangað.... enda ekki annað hægt þar sem ég hef heyrt að þar fljóti allt í íslensku sælgæti.


Annars kemur bara stekkjastaur til byggða á morgun.... Allir að muna að setja skóinn út í glugga :)



» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 18:13:32 / fjolzen

Julefrokost

Ég og synir mínir höfðum það ofsa notalegt á meðan kallinn skemmti sér í Berlín. En ég hlakkaði engu að síður til að endurheimta hann þar sem mér fannst orðið erfitt að gera ALLA hluti sjálf, er fegin að vera ekki einstæð. En eins og þið vitið örugglega öll þá var þessi kallfauskur sem ég er gift algjör rola, ásamt þremur öðrum, og þeir misstu af flugvélinni. Hann var sko ekki í góðu bókinni hjá mér í nokkra daga á eftir. En ég er búin að fyrirgefa þessari elsku og á morgun ætlar hann að bjóða mér að koma með vinnunni sinni í julefrokost í Þýskalandi. Við leggjum í hann eldsnemma í fyrramálið, þurfum að henda strákunum í pössun um 8 leytið og svo verður keyrt til gedser þar sem ferjan er tekin til rostock og svo keyrum við í klukkutíma þaðan og komum þá á eitthvað svaka hótel.
Þetta verður vonandi skemmtilegt ævintýri, er pínu smeyk þar sem ég þekki engann í þessu fyrirtæki.... en einhvern veginn verður maður að kynnast fólki.
Vona að allir eigi góða helgi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 08:28:09 / fjolzen

Grasekkja

Í kvöld ætlar maðurinn minn að yfirgefa mig fram á mánudag og fara til Berlínar að djamma með félögum sínum. Þeir verða skrautlegir karlarnir þegar þeir fara héðan í kvöld, með bjórkitl í malla og sumir hverjir búnir að hafa mikið fyrir því að safna mottu :)
Ég ætla sem sagt að vera ein og hugga mig með strákunum mínum. Okkur hlakkar voða mikið til, AM fer í afmæli á morgun og svo kemur jólalestin seinni partinn á Amagerbrogade og við ætlum að kíkja á það. Í kvöld er venjulegi föstudagsfílingurinn, Disney show, ís og sælgæti og huggulegheit.
Best að drífa í að þrífa því þá get ég notið helgarinnar í botn.
Hafið það gott öll sömul.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 20:29:26 / fjolzen

Haukurinn

Þá er maður búinn með afmælisveisluhöld þessa árs. Einungis 2 mánuðir í næsta afmælisbarn á þessu heimili og verður það afmælisbarn 28 ára ungt.
Haukur átti afmæli á mánudaginn, hélt uppá það á laugardaginn og fékk svo gjafir frá íslandi á sunnudaginn. Þannig að hann fékk afmælispakka 3 daga í röð og var gjörsamlega orðinn ruglaður í þessu og sagði aftur og aftur og aftur í gær "min ammæli, búinn"
Nú er litla greyið búinn að vera með hrikalega mikið kvef alla vikuna og var með smá hitavellu í kvöld, svo ég verð heima með honum á morgun.
Ætla núna að glápa á sjónvarpið.



» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 13:30:43 / fjolzen

Mikið að gerast á litlu heimili

Ég setti loksins inn "nýjar" myndir á barnaland, alveg frá því í sumar og til nú.
Annars er brjálað að gera í praktíkinni, skil ekki hvernig á að vera hægt að eiga líf samhliða þessu námi, endalausar kröfur á mann að gera hin og þessi verkefni og mér finnst ég gjörsamlega vera að drukkna.
Í dag var ég með í aðgerð. Lungnaaðgerð, það var verið að fjarlægja hluta af lunganu vegna krabbameins. Þetta var alveg merkilegur hlutur. Maðurinn lá á hliðinni og svo skar læknirinn og svo þurfti hann að brenna innað rifbeinum. Svo voru bara fengnar svona tangir sem héldu öllu opnu og barabimm ég horfði á lungað í allri sinni dýrð. Svo var loftið tekið úr lunganu og það féll saman. Þá sá ég hjartað á fullu. Svo fór læknirinn að leyta að æxlum á lunganu og hann þreyfaði og skar og skar og þreyfaði og svo gekk hann frá og hellti fullt af vatni inn í holuna og saug það aftur upp og lokaði svo. Díses þetta var eiginlega alveg ótrúlegt að horfa á.
Svo kem ég heim og þá bíður mín bréf í póstinum um að nú sé kominn tími til að skrá barnið mitt í skóla..... ég vissi það alveg en vá hvað maður fær eitthvað mikið sjokk þegar tíminn er allt í einu kominn. Litli guttinn minn ,sem er orðinn svo duglegur að rífa kjaft, er að fara í skóla.
Svo berjumst við við að selja bílinn. Erum búin að setja hann á uppboð á netinu 2 sinnum en fáum ekki nógu mikið fyrir hann. Þannig að nú ætla ég að fara og sækja strákana og svo keyrum við á bílasöluna þar sem við keyptum bílinn og sjáum hvað þeir vilja kaupa hann á. Vonandi losnum við við hann sem fyrst.... gengur ekki alveg að borga svona mikið af bíl þegar krónan er svona skemmtileg.



» 2 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 08:54:25 / fjolzen

Var klukkuð... gjöriði svo vel

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

 *Skalli Reykjarvíkurvegi, fyrsta alvöru vinnan mín.

*Fjarðarkaup, kjötborð

*Hrafnista, aðhlynning, skeiningar og fleira skemmtilegt.

*Íslandsbanki, gjaldkeri... ofsa leiðinlegt.

* Er núna  sygeplejevikar hjá vikarskrifstofunni 1st care. Ræð vöktunum mínum sjálf og fæ helling af reynslu.

 

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:

*Sex And The City - The Movie

*Englar Alheimsins.

*101 Reykjavík.

*Dirty Dancing.... Klassísk

 

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:

 *Kvistaberg 23.

*Blómvangur 12.

*Hraunstíg 6.

*Dalslandsgade 8 K-107 og K-301 – 2300 Köben S.

 

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

 *Spánn... La Marina... mörgum sinnum

*Svíþjóð... Partille Cup með handboltanum '96

*Búdapest... brúðkaupsferð með eiginmanninum

*Berlín... stelpuferð dauðans í mars

 

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar (og er að dánlóda like crazy þessa daga):

*Gossip Girl

*One Tree Hill

*Greys Anatomy

*Desperate Housewifes

Og margir fleiri... enda eðalsjónvarpssjúklingur

 

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:

 *mbl.is

*fjolzen.blogcentral.is

*facebook.com

*hotmail.com

 

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á:

*Elska heimatilbúna hamborgara

*Nautalund

*Mexikanskar pönnukökur með kjúkling, guaqamole og tilheyrandi

*þegar Gummi tekur sig til og eldar, þá eldar hann alltaf eitthvað ljúffengt

 

8. Fjórar bækur/blöð sem ég held upp á/les oft:

*Verð ég ekki að segja að ég lesi fullt af skólabókum

*Kig ind

Annars les ég ekki mikið, gefst ekki mikill tími til þess á þessu litla heimili

 

 9. Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:

*í fríi á spáni, liggjandi á ströndinni og njóta lífsins

*á íslandi að máta skó hjá mömmu, og knúsa systur mínar

*í Búdapest að endurupplifa brúðkaupsferðina með manninum mínum

*í stærri íbúð

 

10. Fjórir bloggarar sem ég á að klukka:

*Hafdís Björk
*Steinunn og Hallur
*Heiða Dís


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 10:39:12 / fjolzen

Gaman gaman

Fékk meil áðan um að það væri 25% afsláttur á flugum hjá easy jet til 28. mars. Ég dreif því í að kaupa mér far... við ætlum að fara í berlínarferð nr2 kellurnar á kolleginu þann 12. mars og vera yfir helgi... það verður geggjað. Alveg gott að hafa eitthvað að hlakka til svona þegar myrkrið sígur yfir allt og alla. Annars er ég bara búin að vinna eins og vitleysingur þessa vikuna. Var í praktík mán-fim og svo tók ég næturvakt sem vikar í nótt. Var að passa ansi geðsjúkann mann og var mikið glöð þegar klukkan sló 7:30 og ég gat farið heim... held að ég vilji ekki oftar sitja vakt hjá psykotiskum sjúklingum.
Svo er ég að fara í verslunarferð til Svíþjóðar á laugardaginn með vel völdum kellum. Ætlum að keyra og taka ferju og fara í huges vöruhús og versla jólagjafir.
Góða helgi gott fólk



» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Hver er Fjóla
Ég heiti Fjóla Helgadóttir. Ég er '82 árgerð, stoltur Hafnfirðingur. Ég bý eins og er í Kaupmannahöfn með manninum mínum honum Gumma og sonum okkar þeim Arnari Mána og Hauki. Ég er hjúkrunarfræðingur og starfa á Amager hospital. Einhvern tímann... þegar við verðum stór, þá pökkum við niður í tösku og komum aftur heim :)
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox

Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 29 ágúst
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 230541